|
|
14.08.2007 02:19:39 / gummia
Ég er búinn að gera nýtt blogg á gummia.wordpress.com því að mér
fannst þetta blog central svo fatlað... en hitt er ekkert mikið
skárra, aðeins þó... ætla að prófa það.
gummia.wordpress.com
»
30.06.2007 18:58:57 / gummia
Rakst á þetta á heimasíðu skólans míns.
http://www.medieskolerne.dk/nyhed.asp?id=131
Þetta er um útskriftina mína (og míns bekkjar) þar
sem skrifað er af stolti um mikinn fjölda hárra einkunna.
»
26.06.2007 19:15:40 / gummia
Þá er þetta allt að gerast. Fer í sumarfrí á föstudaginn, og
held til Danmerkur á mánudag. Verður gott að komast í burt smá.
»
30.04.2007 19:55:36 / gummia

Rosenberg lengi lifi...
»
26.04.2007 15:12:52 / gummia
Mynd sem ég tók um daginn...
»
21.04.2007 14:20:32 / gummia
Þetta er einn af þessum dögum... þar sem allt fer til andskotans
bara við að að vera til staðar....
»
15.04.2007 00:50:21 / gummia
Ég er eitthvað svo eirðarlaus þessa dagana.... veit
ekkert hvað ég áð gera við mig... langar í allt og ekkert á sama
tíma. Úff!
»
11.03.2007 01:45:02 / gummia
Þá er þetta yfirstaðið. Ég er útskrifaður með sveinspróf í Film
og TV production. Við í mínum hóp fengum 11 fyrir
lokaverkefnið okkar, stuttmyndina sem sjá má hér neðar á
síðunni. Mestur hluti samtalsins sem átti að fara í að verja
myndina og tala um hana fór í hrós frá dómurunum. Þeir sögðust
nánast ekkert finna að henni og neyddust til að tína til eitt og
eitt smáatriði, svokallaðan "tittlingaskít", sem að þeirra sögn
væri samt eiginlega ekkert, þeim fannst þau bara þurfa að geta
komið með einhverja gagnrýni. Ég er glaður með það, en hefði
þó viljað fá einhverja uppbyggilega gagnrýni, sem er nýtileg til
einhvers, í stað hreins lofs og hróss, þó það sé nú alltaf gaman að
heyra það.
Einkunirnar mínar voru svo allar frá 8 til 11, flestar
níur þó.
Ég kem svo heim á fimmtudaginn kemur. Sjáumst þá.
»
06.03.2007 15:35:10 / gummia
Þá er þetta allt að klárast. Þetta
skeið lífs míns, Film & Television námið í Viborg að renna
sitt skeið. Maður er nú búinn að þroskast heilmikið á þessum tæpum
fjórum árum, bæði sem manneskja og sem fagmaður innan þessa geira,
og nú er bara um að gera stoppa ekki, heldur bara halda
áfram að þroskast á sem flesta mögulega vegu.
Hérna er bekkjarmynd sem var tekin
af okkur daginn sem við tókum skriflega lokaprófið.
»
28.02.2007 14:45:11 / gummia
Hér er svo afrakstur seinustu vikna.
Lokaverkefnið mitt frá Medieskolerne.
--Ef þið sjáið ekki videoið hér fyrir ofan, prófið
þá þennan
link.--
»
27.02.2007 11:07:53 / gummia
jamm, það er ekki mikið að frétta svosem... ég er að leggja
lokahönd á sveinsprófs stuttmyndina okkar... litaleiðrétta og klára
svo að hljóðmixa seinni partinn... þetta er að hafast... svo eigum
við að skila á morgun. Allt hljóð í myndinni er tekið upp
eftir á (foley), nema eitt samtal í upphafi og eitt komment í
lokin. Það er svo gaman að gera svona.. finna réttu hlutina til að
skapa hljóðin sem passa... allt frá andardrætti til fótspora, og
stroká í fötum þegar fólk hreyfir sig... hihi það er gaman
þegar það gengur upp, hlutirnir falla saman og maður trúir á þann
heim sem maður er að skapa. Þá er gaman að lifa.
Hér eru nokkrar kyrrmyndir úr stuttmyndinni okkar, í
gamni.






»
22.02.2007 13:07:13 / gummia
Jæja þá er loksins kominn vetur í Danmörku. Við kláruðum tökur á
lokaverlefninu okkar í gær, daginn sem snjóstormurinn skall á. Við
vorum í Århus, í kjallaranum á Filmbyen að taka upp. Vorum þar frá
9 um morguninn og stanslaust að til kl. 22 um kvöldið þegar við
keyrðum til baka til Viborgar í tveimur bílum, einum stabílum
fjölskylduvagni og svo rauðum Mazda Sumo bíl frá skólanum,
svona kubb, sem er við það að hrynja í sundur, og á
sumardekkjum. Það sem gerði það að það var yfir höfuð hægt
að keyra hann var að hann var fullur af tækjum. Það var alveg
blyndbilur og 20 km röð á hraðbrautunum, allt stopp. Flutningabílar
þversum á vegunum út um allt. Á meðan lölluðum við framjá, hægt og
örugglega, áleiðis til Viborgar. Í útvarpinu heyrðum við svo að
Falck hefði gefist upp við að hjálpa fólki sem sat fast og að
enginn ætti að vera á ferðinni á okkar svæði nema farartæki á
beltum. Það gekk fínt hjá okkur á sumardekkjunum, hægt en
örugglega. Svo ýttum við Mazda bílnum síðasta spölinn upp að
skólaheimilinu, upp brekku í gegnum 35 cm snjólag, á sumardekkjum,
fullan af tækjum. Við gátum ekki verið þekkt fyrir það að hafa
tekist að komast frá Århus til Viborg í þessari færð án og
komast svo ekki inn á bílastæðiði við skólaheimilið.
Þetta er mesti snjór í Danmörku síðan '93, minnir mig
frekar en '91.
»
20.02.2007 19:49:13 / gummia
Manísk kontrólfrík fara hrikalega mikið í taugarnar á mér, fólk
sem þarf alltaf að ráðskast með alla í kringum sig bara til að
finnast það stjórna. Fyrirlít það. Og ekki hjálpar ef það talar til
annarra eins og lítilla barna sem þarf að skamma.
$Aƙ
»
17.02.2007 15:31:26 / gummia
 Heppinn er ég að
hitt fólkið í hópnum mínum er svo gott í svona praktískum
hlutum. Redda hinu og þessu og svona. Þá þarf ég ekkert að
hugsa um annað en að leikstýra herlegheitunum sem er
lokaverkefnið okkar. Ég sit núna með kamerumanninum og er að
útbúa skotplan, við förum í gegnum hverja senu og hugsum hana
í gegn myndlega, tölum um öll smáatriði, ég mikið út frá hvað
þjónar sögunni best og hvernug frásögnin er best og hann meira
út frá flottum myndum, dollyum og steadicam. Annars komumst
við að því að við getum ekki notað pro35 adaptorinn og 35mm
linsurnar, því stangirnar sem bera þáð á kamerunni passar
ekki, og við getum ekki sett þráðlausa fókus pullið á það
heldur... þannig að viðerum komin tilbaka í venjulegar video
linsur... leiðinlegt. Fengum þetta vitlaust afgreitt frá þeim
sem lánaði okkur það, glatað. Hvað um það.
»
14.02.2007 08:41:12 / gummia
Tíminn líður, dagarnir fljóta hjá. Enn er ég ekki farinn að fara
í skólann. Hver upprifjunardagurinn fyrir stóra prófið rennur
framhjá. En það skiptir ekki máli þó að ég missi af þeim, því ég er
svo klár. Skriflega lokaprófið mitt er á föstudaginn, og
ég hugsa að ég fari í skólann á morgun, svona rétt til að venja mig
við aftur áður en prófið brestur á. Svo þarf ég bara að lesa, og
lesa. Það er erfitt að koma sér að því, en samt hef ég litlar
áhyggjur. Ég er búinn að læra þetta svo samviskusamlega í gegnum
árin. Ég þarf bara að rifja upp hinar og þessar tölur, og nokkrar
formúlur. Og kannski fréttamennsku og auglýsingafræðin, sem eru mín
slökustu fög, en vega sem betur fer ekkert ofsalega mikið á
prófinu. Fell alla vega ekkki þó að ég klúðri því alveg.
Sally er hér enn, því getiði hvað. Hún smitaðist, og liggur
alveg frá, hún er að ganga í gegnum sama hitamók og ég þegar hún
kom til mín. Kemst þess vegna ekki héðan. Þetta er alveg glatað
fyrir hana.
»
Síður: 1 2 3 ... 6
|
Dagsetning
23. febrúar 2012
|